Þrjár spurningar um framtíðina

Þrátt fyrir að tíu flokkar séu í framboði er valið merkilega einfalt. Þú þarft ekki að taka kosningapróf til að vita fyrir hvað Sjálfstæðisflokkurinn stendur. Ábyrgð, stöðugleiki og lágir skattar - formúlan að baki þeirri stöðugu aukningu lífsgæða sem við búum nú við.

Þú getur líka valið úr fjölmörgum smáflokkum sem ætla að kollvarpa þessari stefnu. Þeir gefa allir út loforðalista sem fjármagna skal með skuldsetningu og skattahækkunum og geta myndað til þess alls kyns fimm flokka samsetningar. Það mun setja allan stöðugleika í uppnám. Valið á laugardaginn er skýrt og mun hafa bein áhrif á okkar daglega líf.

1. Hvernig þróast matarkarfan?

Íslensk heimili finna að við erum á réttri leið. Það er auðveldara að láta mánaðamótin ganga upp. Fólk fær meira fyrir launin sín. Skattarnir hafa lækkaðog verðbólgan verið lág. Tollar og vörugjöld hafa verið afnumin, verslun er frjálsari, tryggingagjaldið hefur lækkað og álögur á fyrirtæki minnkað.

Þetta getur allt breyst mjög hratt ef ný ríkisstjórn setur verðbólguna af stað aftur. Reikningurinn fyrir loforðalistana birtist okkur öllum í hærra vöruverði.

2. Verða afborganirnar hærri eða lægri?

Tugþúsundir Íslendinga njóta þess að afborganir af lánum hafa lækkað eftir endurfjármögnun. Þetta var hægt vegna þess að vextir eru lágir. Það er ekki tilviljun.

Útgjaldalistinn sem nú er lofað mun hækka vextina aftur. Afborganirnar munu hækka með.

3. Skattahækkanir eða skattalækkanir?

Við höfum lækkað skatta verulega - mest á þá sem lægst hafa launin. Við munum halda því áfram. Fyrir vikið hefur fólk meira milli handanna og fyrirtækjum gengur betur. Nýjum störfum og spennandi tækifærum fer hratt fjölgandi.

Þetta mun breytast ef skattahækkanir á einstaklinga og fyrirtæki verða aftur lausn allra vandamála, eins og við munum frá tíð síðustu vinstri stjórnar. Stjórnar sem stóð fyrir á annað hundrað skattahækkunum.

Valið er skýrt

Það er ekki hægt að senda reikninginn fyrir loforðalistunum frá sér og láta einhvern annan borga. Við þurfum öll að borga fyrir ábyrgðarleysi með hærri afborgunum um mánaðamótin, í hærri sköttum á launaseðlinum og í hærra verði á kassanum úti í búð.

Þess vegna lofum við ábyrgð og stöðugleika ofar öllu öðru. Atkvæði greitt öðrum en Sjálfstæðisflokknum er atkvæði greitt auknum líkum á fjölflokka vinstristjórn. Sleppum óvissuferðinni og höldum áfram á réttri braut.


Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.


Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  |  Geislagötu 5   |   Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-AK á facebook  |  XD-NA á facebook