Málefni fatlaðs fólks á Akureyri

Akureyrarbær  tók við málefnum fatlaðra um áramót 2010 - 2011 líkt og önnur sveitarfélög. Bærinn ber samkvæmt því ábyrgð á skipulagi og framkvæmd þjónustu við fatlaða einstaklinga. Það þýðir að bærinn ber ábyrgð á gæðum þjónustunnar og kostnaði vegna hennar. D listinn á Akureyri vill standa sérstakan vörð um þennan málaflokk og telur skýra stefnumótun brýna. Stefnumótunin þarf að byggja á sameiginlegri framtíðarsýn þjónustuþega, starfsmanna sem vinna innan málaflokksins og þeirra sem stjórna bæjarfélaginu. Áherslur D-listans í málaflokknum endurspeglast í eftirfarandi þáttum:

Aðgengi.
Aðgengismál á Akureyri eiga ávallt að vera til fyrirmyndar allt árið um kring hvort heldur eru merkingar bílastæða, aðgengi að fyrirtækjum og stofnunum, aðgangur að upplýsingum eða möguleikum til tjáskipta. Aðbúnaður í íþróttamannvirkjum þarf að vera til fyrirmyndar og taka mið af þörfum fatlaðra einstaklinga. Aðgengismál eru mannréttindamál. Í frekari uppbyggingu og viðhaldi á útivistarsvæðum okkar Akureyringa s.s. í Kjarnaskógi og Naustaborgum er mikilvægt að gera úttekt og áætlun um úrbætur sem tekur tillit til umgengni fatlaðra einstaklinga á þessum svæðum. Allir eiga að geta notið útivistar á Akureyri allt árið um kring.

Ferðaþjónusta.
Mikilvægt er að ferðaþjónusta fatlaðra einstaklinga sem ekki geta nýtt sér almenningsfarartæki sé með þeim hætti að þeir geti verið sem mest sjálfstæðir og virkir þátttakendur í samfélaginu. Með greiðum samgöngum verði þeim gert kleift að stunda atvinnu, nám og njóta fjölbreyttra tómstunda allt árið um kring. Það er mikilvægt að leita ávallt hagkvæmustu lausnar fyrir bæjarfélagið hverju sinni. Umsýsla á ferlimálum fatlaðra þarf að vera einstaklingsmiðuð og einkennast af skilvirkni og einfaldleika.

Sjálfstæði og búseta
Lífsgæði er að stórum hluta fólgin í því að eiga fjölbreytt val um búsetu og að umhverfið sé hvetjandi til virkrar þátttöku og sjálfstæðis. Þjónusta við fatlaða einstaklinga þarf að taka mið af því. D listinn vill að notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) verði áfram valkostur sem unninn er í samstarfi við Velferðarráðuneytið. Stuðningur í daglegu lífi þarf ávallt að vera fyrir hendi þar sem þörf krefur. Meginmarkmið með stuðningi miði að því að fatlaðir einstaklingar geti lifað í samfélagi án aðgreiningar hvort heldur er í skóla, tómstundastarfi eða atvinnu. D listinn leggur áherslu á þjónandi leiðsögn í samskiptum starfsfólks og notenda þjónustu.

Lífstíll og afþreying
Fjölbreytt val um lífsstíl og val um afþreyingu þarf að vera í boði allt árið um kring. Horfa á til þess að bjóða upp á skipulagðar árstíðarbundnar dagsferðir innan sveitarfélags þar sem notið er fjölbreyttrar útivistar og menningar.

Fræðsla og þjónandi leiðsögn
Fatlað fólk á að geta notið menntunar og hafa val um fjölbreyttar námsleiðir eftir áhugasviði og getu. Á Akureyri eru skólar án aðgreiningar sem tryggja nemendum jöfn tækifæri til náms. Jákvætt, fordómalaust viðhorf og sveigjanleiki er forsenda þess að einstaklingar fái notið hæfileika sinna í námi. Fjölbreytt sérfræðiþekking er mikilvæg innan skólakerfisins og að öflug fræðsla sé í boði fyrir starfsfólk, foreldra og aðra aðstandendur.

Heilbrigði
Heilbrigðisþjónusta fyrir fatlað fólk þarf að vera góð hvort heldur er fyrirbyggjandi, almenn eða sérhæfð. Stytting biðtíma í heilbrigðisþjónustu er eitt af forgangsmálum D-listans á Akureyri. Mikilvægt er að tryggja aukið fjármagn til heilsugæslunnar sem allra fyrst. Rafræn tækni er dæmi um lausn sem skapar eftirsóknarvert svigrúm í þjónustu við sjúklinga og gert hana skilvirkari. Styttri biðtími er hagur allra. Á Akureyri vill D-listinn  forgangsraða því mikilvægasta fyrst.


Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  |  Geislagötu 5   |   Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-AK á facebook  |  XD-NA á facebook