Flýtilyklar
Sex efstu sæti framboðslista kjörin í röðun
Kosið var í sex efstu sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í röðun fulltrúaráðs í Brekkuskóla í dag.
Gunnar Gíslason, Eva Hrund Einarsdóttir, Þórhallur Jónsson, Lára Halldóra Eiríksdóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Þórhallur Harðarson hlutu kosningu.
Kjörnefnd leggur fram tillögu að framboðslista í heild á fundi í fulltrúaráðinu 15. febrúar nk.
Nánari úrslit í hvert sæti:
1. Gunnar Gíslason - Gunnar hlaut 86 atkvæði, Axel Darri Þórhallsson hlaut 17 atkvæði. Aðrir frambjóðendur fengu samtals 8 atkvæði. Ógild og auð 2. 113 greiddu atkvæði.
2. Eva Hrund Einarsdóttir - Eva Hrund var ein i kjöri um 2. sætið og því sjálfkjörin í það.
3. Þórhallur Jónsson - Þórhallur hlaut 47 atkvæði, Baldvin Valdemarsson hlaut 34 atkvæði. Aðrir frambjóðendur fengu samtals 32 atkvæði. Enginn seðill ógildur. 113 greiddu atkvæði.
4. Lára Halldóra Eiríksdóttir - Lára Halldóra hlaut 40 atkvæði, Berglind Ósk Guðmundsdóttir hlaut 38 atkvæði. Aðrir frambjóðendur fengu samtals 30 atkvæði. Enginn seðill var ógildur. 108 greiddu atkvæði.
5. Berglind Ósk Guðmundsdóttir - Berglind Ósk hlaut 40 atkvæði, Þórhallur Harðarson hlaut 24 atkvæði. Aðrir frambjóðendur fengu samtals 34 atkvæði. Enginn seðill var ógildur. 98 greiddu atkvæði.
6. Þórhallur Harðarson - Þórhallur hlaut 49 atkvæði, Elías Gunnar Þorbjörnsson hlaut 30 atkvæði. Aðrir frambjóðendur fengu samtals 12 atkvæði. Enginn seðill var ógildur. 91 greiddi atkvæði.