Flýtilyklar
Njáll Trausti Friðbertsson fimmtugur
Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður og fyrrum bæjarfulltrúi á Akureyri, er fimmtugur í dag.
Eftirfarandi umfjöllun um Njál Trausta birtist í Morgunblaðinu í dag:
"Njáll Trausti Friðbertsson fæddist 31. desember 1969 í Reykjavík. Hann var síðasta barn ársins 1969, fæddist kl. 22.20. Hann ólst upp á Seltjarnarnesi og var mikið hjá ömmu sinni í Faxaskjólinu.
Njáll gekk í Mýrarhúsaskóla, Valhúsaskóla og Menntaskólann í Reykjavík og varð stúdent 1990. Njáll var skiptinemi í Delaware í Bandaríkjunum veturinn 1987-1988 og gekk í Caesar Rodney High School. „Ég spilaði fótbolta með skólaliðinu og varð markahæstur í ríkinu og valinn í lið þess. Ég æfði með KR frá unga aldri en hætti knattspyrnuiðkun eftir skiptinemaárið vegna meiðsla. Skiptinemaárið var mjög lærdómsríkt og maður fékk aðra sýn á tilveruna.“
Njáll hóf nám í flugumferðarstjórn strax eftir stúdentspróf og starfaði við flugumferðarstjórn á Akureyrarflugvelli eftir að námi lauk og þangað til hann settist á þing haustið 2016. „Ég viðheld réttindunum sem flugumferðarstjóri með því að vinna eina og eina vakt.“
Njáll Trausti er einnig útskrifaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri 2004 með áherslu á ferðaþjónustu og þá sérstaklega á hagræna þætti hennar.
Njáll hóf þátttöku í bæjarpólitíkinni á Akureyri 2010 sem varabæjarfulltrúi og síðan bæjarfulltrúi 2014-2016. Hann sagði af sér sem bæjarfulltrúi eftir að hafa verið kosinn á þing um áramótin 2016/2017. Hann situr í fjárlaganefnd og atvinnuveganefnd og er formaður Íslandsdeildar NATÓ-þingsins. Njáll hefur verið áberandi í umræðum um málefni ferðaþjónustunnar, samganga og raforkumál frá því að hann settist á þing.
Í rúm 20 ár tók Njáll þátt í starfi Roundtable á Íslandi og var meðal annars landsforseti RTÍ á þeim tíma. Njáll er virkur félagi í Oddfellow á Akureyri. Hann er annar tveggja formanna Hjartans í Vatnsmýri sem stofnað var til að verja Reykjavíkurflugvöll í Vatnsmýrinni.
„Ég hef mjög gaman af því að ferðast og þá ekki síður innanlands. Litlu hlutirnir eru farnir að veita manni meiri ánægju með tímanum eins og að fara í góðan göngutúr með labradortíkina mína hana Bellu.
Við hjónin giftum okkur 31. desember 1999 rétt áður en 2000-vandinn átti að bresta á. Við eigum því 20 ára brúðkaupsafmæli á fimmtugsafmælinu.“
Eiginkona Njáls er Guðrún Gyða Hauksdóttir, f. 16. október 1968, hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri hjá Heilsuvernd. Þau eru búsett í Naustahverfi á Akureyri. Foreldrar hennar eru hjónin Ásta Kjartansdóttir, f 19.2. 1950, heilbrigðisritari og Haukur Sigurðsson, f. 23.10. 1947. viðskiptafræðingur. Þau giftust 29.7. 1972 og eru búsett í Kópavogi.
Börn Njáls og Guðrúnar eru: 1) Stefán Trausti, f. 2.11. 1996, rafeindavirki á Akureyri. Dóttir hans er Elena Hrönn, f. 11.12. 2015; 2) Patrekur Atli, f. 1.2. 2001, verkfræðinemi við Háskólann í Reykjavík.
Systkini Njáls eru Kristín Björk Friðbertsdóttir, f. 22.5. 1963, býr í Reykjavík; Friðbert Friðbertsson, f. 11.4. 1965, forstjóri Heklu; Jóhann Grímur Friðbertsson, f. 10.4. 1971, sjóntækjafræðingur, býr í Svíþjóð.
Foreldrar Njáls voru Friðbert Páll Njálsson, f. 10.12. 1940, d. 26.1. 2003, sölumaður í Reykjavík, og Pálína Guðmundsdóttir, f. 2.3. 1944, d. 6.4. 2008, vann við umönnun aldraðra í Reykjavík. Þau skildu þegar Njáll var ungur að árum."
Sjálfstæðismenn á Akureyri og í Norðausturkjördæmi öllu óska Njáli Trausta og fjölskyldu hans innilega til hamingju með stórafmælið.