Lausaganga katta bönnuð 2025

Lausaganga katta verður bönnuð á Akureyri frá 1. janúar 2025. Meirihluti bæjarstjórnar samþykkti tillögu þess efnis á fundi sínum í dag.

Eva Hrund Einarsdóttir, bæjarfulltrúi, var málshefjandi og lagði fram tillögu þess efnis að samþykktir um kattahald yrðu endurskoðaðar en við umræður kom í ljós að meirihluti bæjarstjórnar vildi ganga enn lengra en málamiðlunartillagan gerði ráð fyrir. Svo fór því að Eva Hrund lagði fram nýja tillögu sem samþykkt var af sjö bæjarfulltrúum. Fjórir voru á móti og lögðu fram bókun.

Tillaga Evu Hrundar, sem samþykkt var, er eftirfarandi: 

"Bæjarstjórn samþykkir að endurskoða samþykktir um kattahald í Akureyrarkaupstað. Verður þá með nýjum tillögum lausaganga katta ekki heimil en sett svokallað sólarlagsákvæði inn sem er þrjú ár. Lausaganga katta verður þá ekki heimil frá ársbyrjun 2025. Þá verði einnig settur umtalsverður meiri kraftur að í að framfylgja þeim samþykktum með sérstakri áherslu á ábyrgð eigenda, skráningarskyldu og fræðslu."

Við svo búið lagði Hilda Jana Gísladóttir fram bókun fyrir sína hönd, Sóleyjar Bjarkar Stefánsdóttur og Heimis Haraldssonar, en þau ásamt Höllu Björk Reynisdóttur, forseta bæjarstjórnar, greiddu atkvæði gegn tillögu Evu Hrundar.

Bókun fjórmenninganna er eftirfarandi:

"Við hörmum þá niðurstöðu bæjarstjórnar að banna alfarið frjálsa útivist hjá kisum. Bæjarfélagið hefur lítið sem ekkert gert til að framfylgja þeim samþykktum sem nú þegar eru í gildi né látið á það reyna að breyta samþykktum í þá veru að sem flestir geti vel við unað. Hægt hefði verið að stíga það skref að heimila ekki útivistina að næturlagi og yfir varptíma fugla. Mikilvægara hefði verið að leita lausna en að grípa til banns. Fyrst grípa á hins vegar til banns hefði verið eðlilegra að setja sólarlagsákvæði, þannig að þær kisur sem nú þegar eru útikisur fái að vera það út sinn líftíma."


Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  |  Geislagötu 5   |   Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-AK á facebook  |  XD-NA á facebook