Flýtilyklar
Kjördæmisþing í Mývatnssveit 19. júní
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi er boðað til fundar á Sel-Hótel í Mývatnssveit laugardaginn 19. júní nk. kl. 13:00.
Dagskrá:
1. Tillaga kjörnefndar að framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi
Harpa Halldórsdóttir, varaformaður kjörnefndar, gerir grein fyrir störfum kjörnefndar og tillögu hennar að skipan framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í alþingiskosningum 25. september nk.
Umræður og afgreiðsla í kjölfarið
2. Kosningabaráttan framundan
Njáll Trausti Friðbertsson, oddviti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, fer yfir kosningabaráttuna og verkefnin framundan.
Umræður í kjölfarið
Þinggjald 2000 kr.
Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi