Hverfisgöngur í miðbæ og Hrísey

Hverfisgöngur verða í miðbæ og Hrísey á næstunni:

Fimmtudaginn 11. júní göngum við um miðbæinn - hittumst við Akureyrarkirkju kl. 16:00. Við fáum okkur hressingu á Múlabergi eftir gönguna.

Föstudaginn 12. júní göngum við um Hrísey - hittumst við Hríseyjarskóla kl. 17:00.
Safnast verður í bíla við Kaupang kl. 14:30. Ferjan tekin á Árskógssandi kl. 15:30 og til baka kl. 19:00 en einnig boðið upp á samveru þar til ferjan fer kl. 21:00.

Allir eru velkomnir - okkur langar til að hitta þig, heyra hvað þú hefur að segja um hverfið þitt, hver staðan er á göngustígum, umferðaröryggi, leikvöllum, í skipulagsmálum og öðru mikilvægu.


Fylgstu með hópnum á Facebook-síðu Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.


Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  |  Geislagötu 5   |   Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-AK á facebook  |  XD-NA á facebook