Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi samþykktur

Tillaga kjörnefndar að framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi var samþykkt á fundi kjördæmisráðs í Mývatnssveit í dag. Sex efstu sæti listans eru skipuð af frambjóðendum í prófkjöri flokksins sem fram fór 29. maí sl. 

Framboðslistinn í heild sinni:

1. Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður, Akureyri
2. Berglind Ósk Guðmundsdóttir, lögfræðingur, Akureyri
3. Berglind Harpa Svavarsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður byggðaráðs, Egilsstöðum
4. Ragnar Sigurðsson, bæjarfulltrúi, Reyðarfirði
5. Gunnar Hnefill Örlygsson, framkvæmdamaður, Húsavík
6. Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir, háskólanemi, Ólafsfirði
7. Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir, sjálfstæður atvinnurekandi, Siglufirði
8. Ketill Sigurður Jóelsson, verkefnastjóri, Akureyri
9. Ásta Arnbjörg Pétursdóttir, bóndi og fjölskyldufræðingur, Eyjafjarðarsveit
10. Einar Freyr Guðmundsson, menntaskólanemi, Egilsstöðum
11. Helgi Ólafsson, rafvirkjameistari, Raufarhöfn
12. Freydís Anna Ingvarsdóttir, sjúkraliði og bóndi, Aðaldal
13. Róbert Ingi Tómasson, framleiðslustjóri, Seyðisfirði
14. Guðný Margrét Bjarnadóttir, kennari og skíðaþjálfari, Eskifirði
15. Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri, Eskifirði
16. Kristín Halldórsdóttir, rekstrarstjóri, Akureyri
17. Stefán Magnússon, bóndi, Hörgársveit
18. Guðrún Ása Sigurðardóttir, leikskólastarfsmaður, Fáskrúðsfirði
19. Arnbjörg Sveinsdóttir, fyrrv. alþingismaður, Seyðisfirði
20. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Akureyri

Meðaldur tíu efstu er 36,3 ár og meðalaldur allra frambjóðenda er 44,5 ár.


Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  |  Geislagötu 5   |   Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-AK á facebook  |  XD-NA á facebook