Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi samþykktur

Tillaga að framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi var samþykkt á fundi kjördæmisráðs á Akureyri í dag. Áður hafði kjördæmisráðið samþykkt á sérstökum fundi að velja á listann með uppstillingu. Í kjölfarið hófst annar fundur þar sem kjörnefnd lagði fram tillögu sína. 

Framboðslistinn í heild sinni:

1. Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra, Akureyri
2. Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður, Akureyri
3. Valgerður Gunnarsdóttir, alþingismaður, Húsavík
4. Arnbjörg Sveinsdóttir, bæjarfulltrúi og fyrrum alþingismaður, Seyðisfirði
5. Samúel K. Sigurðsson, svæðisstjóri, Reyðarfirði
6. Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri, Djúpavogi
7. Húnbogi Sólon Gunnþórsson, verkfræðinemi, Neskaupstað
8. Sæunn Gunnur Pálmadóttir, hjúkrunarfræðingur, Ólafsfirði
9. Dýrunn Pála Skaftadóttir, verslunarstjóri og bæjarfulltrúi, Fáskrúðsfirði
10. Lára Halldóra Eiríksdóttir, grunnskólakennari, Akureyri
11. Guðmundur S. Kröyer, umhverfisfræðingur og bæjarfulltrúi, Egilsstöðum
12. Jónas Ástþór Hafsteinsson, laganemi og knattspyrnuþjálfari, Egilsstöðum
13. Elvar Jónsson, lögfræðingur, Akureyri
14. Baldur Helgi Benjamínsson, búfjárerfðafræðingur, Eyjafjarðarsveit
15. Rannveig Jónsdóttir, rekstrarstjóri, Akureyri
16. Melkorka Ýrr Yrsudóttir, menntaskólanemi, Akureyri
17. Ketill Sigurður Jóelsson, háskólanemi, Akureyri
18. Anna Alexandersdóttir, verkefnastjóri og bæjarfulltrúi, Egilsstöðum
19. Soffía Björgvinsdóttir, sauðfjárbóndi, Svalbarðshreppi
20. Guðmundur Skarphéðinsson, vélvirkjameistari, Siglufirði


Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  |  Geislagötu 5   |   Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-AK á facebook  |  XD-NA á facebook