Fjör og fjölmenni á skemmtikvöldi sjálfstæðiskvenna

Mikið fjör var á fjölmennu skemmtikvöldi sjálfstæðiskvenna á Akureyri, sem haldið var á kosningaskrifstofunni í gærkvöldi. Troðfullt út úr dyrum og stuðið þvílíkt að það verður lengi í minnum haft. Sigga Kling var frábær og ærði liðið.

Karlarnir þjónuðu konunum með mat og drykk og konurnar okkar með Evu Hrund í fararbroddi slógu alveg í gegn, ótrúlega glaðar og hressar. Þær sýndu glæsileg föt og dönsuðu saman við Eurovisionlag nr. 1, Waterloo með Abba.

Frábært kvöld - fjörið er svo sannarlega hjá okkur í þessari kosningabaráttu :D




 









Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  |  Geislagötu 5   |   Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-AK á facebook  |  XD-NA á facebook