Bæjarstjórn Akureyrar vill víðtæka samstöðu um flugvallarmálið

Samþykkt var með ellefu samhljóða atkvæðum í bæjarstjórn Akureyrar í gær að skora á borgarfulltrúa í Reykjavík að gefa Rögnunefndinni svokölluðu svigrúm til að ljúka vinnu sinni vegna framtíðarskipulags við Reykjavíkurflugvöll og að ekki verði afgreitt að svo komnu máli framkvæmdaleyfi á Hlíðarendasvæðinu í námunda við flugvöllinn.

Þrátt fyrir að eindreginn vilji bæjarstjórnar Akureyrar í þessu máli hafi lengi legið fyrir, var samþykkt seint í gærkvöldi á fundi í borgarstjórn Reykjavíkur að hefja undirbúningsframkvæmdir á Hlíðarendasvæðinu við Reykjavíkurflugvöll.

Bókun bæjarstjórnar Akureyrar er eftirfarandi:

"Bæjarstjórn Akureyrar minnir enn og aftur á mikilvægi innanlandsflugs og að aðgengi landsbyggðanna að höfuðborginni er lykilatriði fyrir farsæla byggðaþróun. Mikilvægt er að sem víðtækust samstaða allra landsmanna náist um framtíðarfyrirkomulag flugvallar á höfuðborgarsvæðinu. Bæjarstjórn Akureyrar krefst þess að nefnd sem kennd er við Rögnu Árnadóttur, Rögnunefndin, fái svigrúm og þann tíma sem hún þarf til þess að leggja fram sínar tillögur og skorar á borgarfulltrúa Reykjavíkur að beita sér fyrir því að ekki verði afgreidd framkvæmdaleyfi á Hlíðarendasvæðinu fyrr en Rögnunefndin hefur lokið vinnu sinni."


Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  |  Geislagötu 5   |   Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-AK á facebook  |  XD-NA á facebook