Aðalfundur kjördæmisráðs - Kristinn endurkjörinn formaður

Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi var haldinn á Hótel Húsavík um helgina. Gestir fundarins voru Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, og Þórður Þórarinsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, sem ávörpuðu fundinn auk Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Njáls Trausta Friðbertssonar, alþingismanns.

Kristinn Frímann Árnason var endurkjörinn formaður kjördæmisráðs, en hann hefur gegnt formennsku síðan í september 2014.

Auk Kristins voru kjörin í stjórn: Stefán Friðrik Stefánsson, Þórhallur Harðarson, Almar Marinósson, Ásgeir Logi Ásgeirsson, Guðrún Ragna Einarsdóttir, Harpa Halldórsdóttir, Íris Ósk Gísladóttir, Jakob Sigurðsson, Jón Orri Guðjónsson, María H. Marinósdóttir, Olga Gísladóttir, Oddný Björk Daníelsdóttir, Ragnar Sigurðsson og Sigurður Ingvi Gunnþórsson. 

Auk þeirra situr í stjórn Baldvin Jónsson, formaður KUSNA - Kjördæmissamtaka ungra sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi. 

Í varastjórn voru kjörin: Anna Alexandersdóttir, Sindri Karl Sigurðsson, Þorgrímur Daníelsson, Hilmar Gunnlaugsson, Ívar Breki Benjamínsson, Karl Lauritzson, Anna Rósa Magnúsdóttir, Leifur Hallgrímsson, Andrés Elísson, Elías Gunnar Þorbjörnsson, Ágústa Björnsdóttir, Hannes Höskuldsson, Svava Lárusdóttir, Samúel Karl Sigurðsson og Davíð Þór Sigurðarson. 

Í miðstjórn voru kjörin Harpa Halldórsdóttir, Ragnar Sigurðsson og Stefán Friðrik Stefánsson. Til vara í miðstjórn voru kjörin Anna Alexandersdóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Melkorka Ýrr Yrsudóttir.

Í kjörnefnd voru kjörin: Stefán Friðrik Stefánsson, Ragnar Sigurðsson, Páll Þór Guðjónsson, Dýrunn Pála Skaftadóttir, Harpa Halldórsdóttir, Anna Alexandersdóttir, Jón Orri Guðjónsson, Sigurður Ingvi Gunnþórsson, Svava Þ. Hjaltalín, Rúnar Sigurpálsson, Baldvin Jónsson, Olga Gísladóttir og Þorsteinn Ásgeirsson. 

Til vara voru kjörnir Ásgeir Logi Ásgeirsson og Ívar Breki Benjamínsson. Formaður kjördæmisráðs og formenn fulltrúaráða í kjördæminu eru sjálfkjörnir í kjörnefnd.


Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  |  Geislagötu 5   |   Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-AK á facebook  |  XD-NA á facebook