2021 og hraðari orkuskipti

Á nýju ári er alltaf gott að líta fram á veginn og skoða hvað megi leggja auknar áherslur á. Ofarlega á mínum lista eru þriðju orkuskiptin. Knýja þarf fram orkuskipti í samgöngum, til að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar í loftslagsmálum miðað við Parísarsamninginn og ný og efld markmið Íslands um minni losun og aukna kolefnisbindingu. Þessum markmiðum þarf að ná, ekki einungis vegna alþjóðlegra skuldbindinga, heldur vegna þess að við getum það. Þ.e. við getum raunverulega hætt að losa gróðurhúsalofttegundir í samgöngum. Þessu markmiði skal því ná náttúrunnar vegna.

Hvatar til að skipta yfir á rafmagnsbíl

Nýskráning rafbíla er með hæsta móti, en aldrei hafa fleiri nýir rafbílar verið skráðir hér á landi en í fyrra samkvæmt tölfræði á vef Samgöngustofu. Vöxturinn er gríðarlega jákvæður.

Rafmagnsbílar verða með ári hverju meira aðlaðandi kostur fyrir einstaklinga, drægni þeirra hefur aukist til muna og það sama má segja um þægindin. Gripið hefur verið til aðgerða af hálfu ríkisins en skattalegar ívilnanir virka sennilega ekki einar og sér, en geta þó vissulega haft veruleg áhrif og séu ívilnanirnar töluverðar má búast við enn meiri hreyfingu. Stjórnvöld þurfa þó að marka skýrari stefnu um skattalegar ívilnanir til lengri tíma.

Aðgengi að hleðslubúnaði

Uppbygging hleðslubúnaðar er ein af grunnforsendum þess að verulega sé hægt að hraða orkuskiptunum. Fleiri fyrirtæki ættu að sjá hag sinn í því að fjárfesta í nauðsynlegum hleðslubúnaði fyrir rafbíla. Verði almennileg fjárfesting í hleðslubúnaði opnar það á frekari tækifæri til nýsköpunar og tækniþróunar.

Ætla má að greiðara aðgengi að hleðslustöðvum verði einnig til þess að fleiri kjósi rafbíl en ella. Til dæmis gætu Akureyrarbær og Norðurorka, jafnframt önnur sveitarfélög og raforkufyrirtæki í nágrenni, litið til samstarfs Reykjavíkurborgar, Orkuveitu Reykjavíkur og Veitna um stofnun sjóðs sem ætlaður er til uppbyggingar á hleðslubúnaði fyrir rafbíla við fjölbýlishús. Slíkur stuðningur gæti skipt sköpum fyrir íbúa í fjölbýlishúsum.

Þá þarf einnig að skoða markvissari uppbyggingu á hleðslustöðvum á öðrum fjölsóttum stöðum, við hafnir og stærri ferðamannastaði til að nefna.

Efla þarf nýsköpun í tengslum við orkuskiptin

Til að þjóna þessu markmiði mætti hér nefna tækifæri til að hefja öflugt tækninám við Háskólann á Akureyri. Efla þarf nýsköpunarstarfsemi háskólans sem sinnir að stórum hluta framhaldsmenntun á landsbyggðinni.

Stærstu tækifærin og hindranirnar eru þó kannski ekki að finna á einstaklingsmarkaði. Heldur þarf að skoða möguleika á nýtingu annarra orkugjafa en jarðefnaeldsneytis í ferðamanna- og þjónustugeiranum. Frekari framþróunar er þörf og veita þarf hressilega innspýtingu í nýsköpunarverkefni með orkuskipti farartækja annarra en fólksbifreiðanna í forgrunni.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir
formaður stjórnar Fallorku og varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri


Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  |  Geislagötu 5   |   Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-AK á facebook  |  XD-NA á facebook